Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessir á eftirlaunum, hefur marga fjöruna sopið á ferli sínum. Öll hans fyrri mál eru þó hjóm eitt miðað við fárið sem varð í fyrrinótt eftir að hann sakaði múslima um að hafa rænt handfarangri sínu. Hannes birti um þetta Facebook-færslu með ávirðingum á móður í „múslimaklæðum“ og dætur hennar. Í athugasemd við færsluna skrifaði Rúna Mjöll Helgadóttir lýsingu sem bar með sér að Hannes hefði að ósekju sakað mæðgurnar um þjófnað. Þarna hefði verið um einföld mistök að ræða og enginn á flótta með þýfi í Leifsstöð. Rúna, sem er 19 ára, var harðorð og taldi að prófessorinn hefði sýnt af sér framkomu sem væri Íslendingum til skammar.
Hannes gefur sig þó ekki og er við sama heygarðshornið í nýjum færslum. Hann ítrekar að um þjófnað hafi verið að ræða og virðist vilja koma lögum yfir Rúnu uppljóstrara sem hafi brotið trúnað með yfirlýsingu sinni.
„Og það er líka með ólíkindum og getur ekki verið í samræmi við starfsreglur, að starfsfólk í Leifsstöð hlaupi í fjölmiðla með sínar frásagnir af því, sem þar gerist innan húss, og ásakanir á hendur viðskiptavinum stöðvarinnar, skrifar Hannes fjúkandi reiður …