Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor þykir um margt vera glöggur greinandi á samfélagsmál og gjarnan tilbúinn til að stökkva á vagninn þegar heitt er í kolum. Hann þykir hafa verið hallur undir Donald Trump í slagnum um Hvíta húsið þar sem stefnir í að forsetinn fallni verði hústökumaður. Trump hefur margsagt að svindlað hafi verið í kosningunum á sinn kostnað og sigrinum stolið. Eitt umkvörtunarefnið er að dauðir menn hafi kosið utan kjörsstaða. Hannes tekur undir með Trump á Facebook.
„Einn lærdómur af bandaríska forsetakjörinu: Repúblikanar verða að auka við fylgi sitt meðal hinna látnu. Það dugir ekki, að Demókratar sitji einir að þeim atkvæðum. Eða eins og gamli Demókratinn sagði: Vote early, and vote often,“ skrifar Hannes og uppsker fjölda athugasemda …