Helgi Magnússon, aðaleigandi Torgs, útgefanda Fréttablaðsins, DV og Hringbrautar, mun vera orðinn þreyttur á tapinu sem plagar félag hans. Prentútgáfa DV hefur verið með miklu tapi. Reynt var að snúa rekstrinum með því að mýkja efnistökin og verða í sama anda og Vikan, sem lifað hefur í áratugi sem kvennablaði. Nú er Tobba Marinós hætt sem ritstjóri og búið að loka búllunni án þess að nýr ritstjóri hefði verið ráðinn. Hermt er að lögð veði meiri áhersla á vefinn, DV.is sem meistari æsifréttanna, Ágúst Borgþór Sverrisson , leiðir þessa dagana þar til nýr ritstjóri verður ráðinn. Vandinn er hins vegar sá að Fréttablaðið er líka í tilvistarkreppu líkt og sjónvarpsstöðin Hringbraut. Hins vegar er Helgi Magnússon auðugur og hefur efni á að moka peningum í hítina. Hann er því þreyttur en ekki kominn að fótum fram …