- Auglýsing -
Fullyrt er að Helgi Magnússon fjárfestir vilji losna við bæði Fréttablaðið og DV og hafi í boðið bæði Sýn og Símanum að yfirtaka útgáfuna en það hafi verið afþakkað. Sigurjón Magnús Egilsson, eigandi Miðjunnar, fullyrðir þetta á vef sínum og segir að útgáfan sé rekin með gríðarlegu tapi. Hann bendir á atgervisflótt frá fyrirtækinu og telur fullvíst að útgáfan verði seld um leið og einhver vill kaupa. Helgi er talinn hallur undir Viðreisn og þar á bæ fagna menn því að hafa blöðin í sínu liði fram yfir kosningar …