Gamla goðsögnin, Guðmundur Árni Stefánsson sendiherra, rúllaði upp prófkjöri Samfylkingar í Hafnarfirði og tók oddvitasætið með góðri kosningu. Guðmundur Árni er Hafnfirðingum að góðu kunnur en stjórnaði Hafnarfjarðarbæ um árabil á miklum uppgangstímum þegar Kratar voru með öflugan meirihluta. Þá er hann ennþá formaður Alþýðuflokksins. Hermt er að það sé hrollur í Rósu Guðbjartsdóttur, bæjarstjóra og leiðtoga Sjálfstæðismanna, og félögum hennar sem óttast hið versta; að missa meirihlutann. Enginn skylfi þó vanmeta Rósu sem er þekkt fyrir hörku og umtalsverð klókindi.
Það vekur ekki síður athygli við niðurstöðurnar að kjarnakonan Sigrún Sverrisdóttir fékk góða kosningu í annað sæti listans. Sigrún hefur verið varabæjarfulltrúi undanfarið kjörtíambil og nýtur virðingar og vinsælda. Þess utan er hún auðvitað þekkti sem björgunarsveitarmapur og sundlaugarvörður í Krossneslaug í Árneshreppi á Ströndum ásamt eigimanni sínum, Davíð Má Bjarnasyni upplýsingafulltrúa Landsbjargar …