Óskar Magnússon, rithöfundur og stjórnarformaður Samherja, er annálaður húmoristi og uppátækjasamur með endemum.
Eiríkur Jónsson blaðamaður vekur athygli á því síðu sinni að sögupersónur Óskars birtust ein af annarri í jólakveðjum Ríkisútvarpsins og sendu landsmönnum, vítt og breytt jólakveðjur. Nefnd eru eftirfarandi dæmi: “Sendi öllum Íslendingum óskir um gleðileg jól og þakka góð kynni. Julia Shannon Washington, Bandaríkjunum.” (14.458 krónur) “Kærar jólakveðjur þakka dygga samfylgd. Stefán Bjarnason lögmaður frá Aurmel í Fljótshlíð.” (12.412 krónur).
Talið er víst að forlag Óskars hafi verið með í ráðum og borgað undir hinar ímynduðu jólakveðjur sem eru Ríkisútvarpinu mikil féþúfa. Ekki er öllum skemmt vegna innrásarinnar og telja að það sé verið að eyðileggja fyrir þeim sem af einlægni senda kveðjur með eigin nafn undir eða kannski gæludýra sinna undir …