Landsliðsmaðurinn Ísak Bergmann Jóhannesson er einn sá allra efnilegasti sem fram hefur komið í knattspyrnuheiminum á síðari tímum. Eftir að hann skoraði eina mark Íslands í leiknum gegn Armeníu og varð sá yngsti í sögunni sem það hefur gert, er hann þjóðhetja. Ísak, sem er þriðja kynslóð afreksmanna í boltanum, er sonur Jóhannesar Guðjónssonar og barnabarn goðsagnarinnar Guðjóns Þórðarsonar, fyrrverandi landsliðsfyrirliða, sem er ennþá á fullu í að þjálfa. Þetta er því í blóðinu hjá Ísaki Bergmann. Til marks um eldmóðinn í kappanum þá fékk hann leikbann í leiknum í kvöld. Hann átti hann þess kost að yfirgefa liðið sem dvelur á Hótel Natura og fara heim til fjölskyldu sinnar og kærustu. Hann vildi ekki fara og óskaði eftir því að dvelja með liðinu fram yfir leikinn í kvöld sem var auðsótt. Sannur liðsandi þar og lofar góðu um framhaldið…