Þórunn Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Úrvals útsýnar, sló heldur betur í gegn hjá landsmönnum í gær þegar hún sagði að ferðaþjónustan á Íslandi þurfi að hætta að væla en undanfarnar vikur og mánuði hafa fyrirtæki og samtök í þeim bransa kvartað undan því að skattfé almennings sé ekki lagt undir auglýsingar í þeirra þágu.
Fremstur þar í flokki fer Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, sem er ræstur út á nokkra vikna fresti fyrir hönd auðmannanna sem eiga ferðaþjónustufyrirtækin. Jóhannes er þekktastur fyrir að hafa verið aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar í mörg ár en þá fékk hann viðurnefnið Jóhannes útskýrari. Nú hafa gárungar hins vegar séð sér leik á borði og hefur nafnið Jóhannes vælari gengið manna á milli til heiðurs Þórunnar. Hvort það festist getur aðeins tíminn leitt í ljós …