Miðvikudagur 22. janúar, 2025
1.6 C
Reykjavik

Jón vill ekki Þórdísi

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Jón Gunnarsson alþingismaður vill ekki Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur sem næsta formann Sjálfstæðisflokksins. Þetta mátti lesa út úr orðum hans á Samstöðinni þar sem hann fór yfir stöðu mála í flokknum. Hann sakar Þórdísi um undirmál og virðingarleysi aðdragnada kosninganna þegar hún flúði Norðvesturkjördæmi og settist í annað sætið í Kraganum. Þórdís Kolbrún er í mótvindi. Hún þykir hafa misst fótanna í pólitík vegna framgöngu sinnar innan flokks og í embætti utanríkisráðherra.

Jón sagði afdráttarlaust að hann myndi ekki sjálfur bjóða sig fram til formennsku. Líklegt þykir að hann leggist á árarnar með Guðlaugi Þór Þórðarsyni alþingismanni ef sá þorir að taka slaginn. Búist er við tilkynningu frá Guðlaugi Þór í dag eða allra næstu daga. Baráttan um formannssætið gæti allt eins orðið einvígi milli hans og Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -