Landslið karla í handbolta hefur valdið þjóðinni gríðarlegum vonbrigðum. Um tíma var talið af mörgum þeirra hrifnæmustu að liðið stefndi þráðbeint á heimsmeistaratitil en það endaði með hálgerðum ósköpum og heimsmeistaradraumarnir brugðust. Í framhaldinu var Guðmundur Guðmundsson, farsæll þjálfari, rekinn. Um liðna helgi dundi svo enn eitt áfallið á liðinu þegar það tapaði fyrir Tékkum með fimm marka mun. Ein af gömlu handboltahetjunum, Sigurður Valur Sveinsson, fyrrverandi landsliðsmaður krefst þess í samtali við Moggann að landsliðið vinni sannfærandi sigur gegn Tékklandi á sunnudag. Það er kjaftur á kappanum. Tapi liðið vill hann senda mannskapinn á togara til loðnuveiða.
Önnur kempa, Sigfús Sigurðsson, sem vann til silfurverðlauna með liðinu á Olympíuleikunum árið 2008 lýsti því í viðtali við Rás 2 að liðið væri ofmetið. Þá vantaði alla stemmningu í kringum liðið.
Öll spjót standa nú á landsliðinu sem fyrir nokkrum vikum var hafið til skýjanna sem verðandi heimsmeistarar Um helgina rennur upp ögurstund þegar í ljós kemur hvernig leikurinn við Tékka fer. Kröfuhörð þjóð mun þá endurskoða dóm sinn ….