Svanhildur Hólm Valsdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, þorði ekki að mæta Lilju Alfreðsdóttur menningarmálaráðherra í Kastljósi Sjónvarpsins í gærkvöld. Umræðuefnið var listamannalaun og breyting á þeim sem ráðherrann hefur boðað. Viðskiptaráð hafði sent frá sér umsögn semætla mál að Svanhildur sé ábyrg fyrir. Í umsögninni kom upphaflega fram að breytingarnar þýddu að útgjðld yrðu aukin um 70 prósent. Svanhildur og félagar urðu að draga þá umsögn til baka og viðurkenna með því hroðvirknina.
Í Kastljósi var umræðuefnið listamannalaunin og breytingar á þeim. Lilja var ein mætt og tilkynnt að Svanhildur hefði ekki þegið boð um að halda á lofti sínum sjónarmiðum. Lítið þykir leggjast fyrir kempuna sem hingað til þefur sótt í sviðsljósið. Svanhildur er á leið til Washington til að taka við sendiherraembætti í boði Sjálfstæðisflokksins …