Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, segist ætla að hefjast handa við að byggja upp Framsóknarflokkinn aftur eftir hrunið sem varð á fylgi hans í liðnum kosningum. Hann brást kokhraustur við á Facebook í gær eftir að upplýst var á þessum vettvangi um gríðarlega óánægju innan flokksins með frammistöðu hans í kosningunum þar sem hann spilaði á trommur á meðan Framsókn brann. Þungavigtarfólk í flokknum vill að hann axli ábyrgð og víki fyrir trúverðugri leiðtoga. Sjálfur hyggst hann sitja sem fastast og ætlar að „fara hringinn í kringum landið, hitta Framsóknarfólk í félögunum, í sveitarstjórnunum og hefja uppbygginguna“.
Það kemur í ljós á næstu misserum hvort hann nær að setja undir sig hausinn og brjótast í gegnum skafl óánægju í flokknum. Til þess þarf hann marga sigra. Sigurður þvertekur fyrir þann orðróm sem gengur ljósum logum í flokknum að hann vilji fá starf innan FAO. „Ég er ekki að fara til Rómar til FAO eða nokkuð annað,“ skrifar hann á Facebook.
Nú er bara að bíða og sjá hvort Sigurður getur troðið ósigrinum ofan í kokið á framsóknarfólki …