- Auglýsing -
Kolbeinn Óttarsson Proppé, fyrrverandi alþingismaður Vinstri grænna, hefur söðlað algjörlega um eftir að hann hætti við að bjóða sig fram til þings aftur í kjölfar ásakana um að hann hefði farið út fyrir mörk í samskiptum við konur. Hann er fluttur til Siglufjarðar og sinnir meðal annars blaðamennsku fyrir Skessuhorn. Kappinn er þaulreyndur blaðamaður og fengur fyrir héraðsblaðið að fá hann í vinnu. Kolbeinn á rætur á Sigló og unir sér þar hið besta. Hann er genginn til liðs við björgunarsveitina á staðnum og unir glaður við útivist og það félagslíf sem staðurinn býður upp á. Pólitískum ferli hans innan VG er væntanlega lokið …