Í gær tilkynnti þingmaðurinn Diljá Mist Einarsdóttir um framboð sitt til varaformanns Sjálfstæðisflokksins en fastlega hafði verið búist við slíku í nokkrar vikur. Mun hún þar keppa við Jens Garðar Helgason um embættið. Nokkur munur er á þeim tveimur og munu landsfundargestir eiga mjög skýra valkosti þegar kemur að framtíð flokksins.
Það er þó eitt sem Diljá hefur sem fæstir aðrir þingmenn hafa. Það er einlæg trú á Jesús Krist en hún hefur ítrekað talað og skrifað um nauðsyn þess að stand vörð um þjóðkirkjuna og kristna menningu landsins. Kemur þetta nokkuð á óvart hjá manneskju undir fertugu sem er fædd og uppalin í borginni.
Vissulega hafa tengsl Sjálfstæðisflokksins við kristni alltaf verið til staðar en komist Diljá til valda innan flokksins munu þau tengsl vafalaust styrkjast mikið. Það eru hins vegar einhverjir innan flokksins sem velta því fyrir sér hvort flokkurinn eigi yfirhöfuð að skipta sér af trúarbrögðum og telja að varaformaður flokksins geti ekki að þjónað tveimur herrum …