Stórstjarnan Patrik Atlason , eða Prettyboitjokko, lætur Bubba Morthens ekki eiga neitt inni hjá sér. Bubbi hélt því fram á dögunum að lög og textar Patriks bæru þau einkenni að vera innihaldslausir og umgjörðin ein.
Patrik, sem er barnabarn súkkulaðikonungsins Helga í Góu, hefur átt hvert topplagið af öðru á vinsældalistum undanfarin misseri. Hann svarað fyrir sig í Bítinu á Bylgjunni og lét Bubba ekkert eiga sinni hjá sér. Hann benti á laxveiðifíkn og athyglisþörf Bubba sem gjarnan væri við veiðar í dýrustu laxveiðiám Íslands og fengi birtar af sér myndir.
Stórsöngvarinn Björgvin Halldórsson fékk álíka afgreiðslu hjá Patrik sem gaf ekkert fyrir gagnrýni poppkónganna …