Lekinn á gögnum Héraðssaksóknara um samskipti Antons Þórarinssonar athafnamanns og uppljóstrara við lögregluna hefur vakið mikla athygli. Um er að ræða ítarlega rannsókn á meintri spillingu lögreglunnar sem hefði veitt uppljóstranum friðhelgi umfram það sem eðilegt geti talist. Mannlíf hefur fjallað ítarlega um gögnin líkt og fleiri fjölmiðlar sem sumir hafa þó verið í hráskinnaleik og ekki nafngreint persónur í gögnunum þrátt fyrir umfjöllun. Einhverjir velta fyrir sér hvernig þessi gríðarlegi leki kom til. Kenningar eru uppi um að skjölin eigi uppruna sinn úr fórum Antons sjálfs og hafi verið rænt þaðan. Þetta er þó algjörlega óstaðfest …