Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, þykir vera öflug þar sem kemur að baráttumálum fyrir fátæka og aðra sem standa höllum fæti í lífinu. Hún á að baki sögu erfiðleika, fátæktar og veikinda. Inga var gestur í Æskuslóðum, nýjasta þætti Viktoríu Hermannsdóttur.
Þær stöllur fóru til Ólafsfjarðar ásamt tökuliði þar sem Inga sagði sögu sína. Hún lýsti því meðal annars þegar hún fékk heilahimnubólgu sem kornabarn á aðfangadagskvöld. Læknir var kallaður til í ofboði þar sem sýnt þótti að barnið væri deyjandi. „Læknirinn kom og vottaði þeim samúð og sagði að því miður væri litla barnið að deyja. En það var seigt í mér,“ sagði Inga sem komst í gegnum heilahimnubólguna en missti sjónina að mestu.
Þættir Viktoríu eru einhverjir þeir bestu sem hafa komið fram í íslensku sjónvarpi undanfarið. Það eru félagarnir Benedikt Valsson og Fannar Sveinsson, þekktir úr Hraðfréttum og víðar, sem leikstýra og framleiða þættina …