Magnús Örn Guðmundsson, frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins, á Seltjarnarnesi, er að sögn í megafýlu þessa dagana vegna þeirrar útreiðar sem hann fékk í prófkjörinu um liðna helgi. Magnús var af flestum talinn sigurstranglegastur þeirra fjögurra sem vildu fá fyrsta sætið. Hann var fulltrúi flokkseigendafélagsins og brautin sem virtist endaði í því hengiflugi að hann hafnaði í þriðja sæti en Þór Sigurgeirsson hrifsaði til sín veldissprotann og Ragnhildur Jónsdóttir, náfrænka Bjarna Benediktssonar formanns, tók annað sætið. Nokkur ólga er vegna þessa og var haft eftir Magnúsi eftir prókkjörið að hann myndi ekki taka þeirri niðurstöðu og hætta fremur en taka niðurlægingunni. Orðrómur er um að lagt sé að honum að taka sætið þannig að flokkseigendur hafi sinn fulltrúa á vaktinni í bæjarstjórn eftir að byltingaröflin taka við …