Guðlaugur Þór Þórðarsson, ráðherra umhverfismála, er á meðal duglegustu ráðamanna þar sem kemur að því að koma sér og góðum málum á framfæri. Mogginn birtir frétt í dag þar sem í öndvegi er samsett mynd er af ráðherranum og þeirri umdeildu Söru Lind Guðbergsdóttur, eiginkonu blaðamannsins geðþekka, Stefáns E. Stefánssonar, og fyrrverandi skjólstæðingi Sjálfstæðisflokksins. Fréttin fjallar um fyrirbærið Ráðhildi, forrit sem leitar uppi bruðl í kerfinu. Guðlaugur og Sara Linda eiga að mati Moggans mestan heiðurinn af forritinu. Neðanmáls er reyndar getið um stýrihóp og mann sem heitir Hjörvar Steinn Grétarsson. Óljóst er hvaða hlut hópurinn og Hjörvar eiga í afrekinu.
Samkvæmt Guðlaugi Þór hefur þegar verið uppgötvuð stórfelld sóun í ráðuneyti hans og sparast hafa verulegir fjármundir.
„Þessi yfirsýn hefur að mínu mati ekki verið til staðar hjá ríkinu og ég hef fundið fyrir því í störfum mínum sem ráðherra,“ segir Guðlaugur Þór í viðtali við Moggann og heitir því að verði hann ráðherra áfram muni Ráðhildur verða honum til aðstoðar.
Það þykir sérdeildis gott að Ráðhildur skuli með .þessum hætti dúkka upp í fangi ráðherrans, daginn fyrir kosningar og undirstrika rækilega hve vel Sjálfstæðisflokkurinn, ráðherrann og Sara Lind hafa staðið sig undanfarin sjö ár …