Allir þeir sem sakaðir eru um að brjóta gegn Vítalíu Lazareva eru æruskertir og í afleitri stöðu.
Vítalía hefur lýst því að hún hafi verið undir áhrifavaldi ástmanns síns, Arnars Grant, þjálfara hjá World Class þegar henni hafi verið þröngvað út í það að eiga niðurlægjandi samskipti við mennina í pottinum og seinna Loga Bergmann Eiðsson fjölmiðlamann á hótelherbergi í Borgarfirði.
Fullyrt er að pottverjarnir, Ari Edwald, Hreggviður Jónsson og Þórður Már Jóhannesson hafi lagt að Arnari að taka undir þau sjónarmið sín að ekkert óeðilegt hafi gerst í samskiptum þeirra við Vítalíu.
Þeim til vonbrigða hafi Arnar séð atvikin í öðru ljósi en þeir og neitað að halda fram sakleysi þeirra gagnvart Vítalíu.
Þessi afstaða þjálfarans hafi orðið til þess að vinslit urðu.
Út a víð hefur svo Arnar ekki sagt eitt einasta orð um ásakanir Vítalíu gagnvart vinum hans.
Arnar er sá eini fyrir utan Vítalíu sem veit nákvæmlega hvað gerðist í báðum tilvikum.
Vitnisburður hans getur ráðið úrslitum um það hvert athæfi mannanna verður metið sem lögbrot. Þögn hans er sláandi …