Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, og fótgönguliðar hans gefa ekkert eftir í stríðinu við nýjasta óvin risafyrirtækisins, listamanninn Odd Eystein Friðriksson, sem vogaði sér að gantast með fyrirgefningarbeiðni Samherja með því að setja upp listgjörning. Oddur Eysteinn, eða Odee eins og hann kallast, setti upp vefsíðuna We’re sorry í nafni Samherja en það er tilvísun í afsökunarbeiðni Þorsteins Más og félaga í tengslum við umræðu um Namibíumál fyrirtækisins. Heilsíðuauglýsingar Samherja voru birtar vegna þessa í Morgunblaðinu og Fréttablaðínu.
Nú hefur dómari í Bretlandi að beiðni Samherjamanna, fyrirskipað Odee að taka niður síðuna og skila skömminni. Heimildin greinir frá þessu í dag.
Óljóst er hvort milljarðamæringurinn Þorstein Már, hyggist krefja listamanninn um fébætur fyrir þessa alvarlegu aðför að heiðri Samherja.
Þorsteinn Már er á meðal þeirra einstaklinga sem eru með réttarstöðu sakbornings í rannsókn héraðssaksóknara á starfsemi Samherja í Namibíu og meintum lögbrotum þar og víðar …