Vangaveltur hafa verið uppi um að Stefán Eiríksson, fráfarandi útvarpsstjóri, vilji fara í pólitík þegar hann hættir sem útvarpsstjóri. Einhverjir hafa bent á möguleika hans í Norðausturkjördæmi undir fána Sjálfstæðisflokksins. Stefán á rætur á Akureyri og gæti örugglega fengið marga til að kjósa sig. Vandinn er þó sá að forystumenn sjávarútvegsrisans Samherja telja sin eiga harma að hefna vegna umfjöllunar Ríkisútvarpsins um brallið í Namibíu og Færeyjum.
Þá eru leiddar líkur að því að Stefán beri mikla ábyrgð á innbrotinu í síma Páls Steingrímssonar sem var rændur á sjúkrabeði. Talið er að tæknimaður Ríkisúvarpsins hafi brotið símann upp í höfuðstöðvum ríkisfyrirtækisins og komið gögnunum á aðra fjölmiðla. Harkan sex gæti því mætt Stefáni ef hann fer norður í atkvæðaleit …