Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, lenti í nokkrum vanda eftir að upplýst var að hann hygðist leita í skjól öfgmanna í Svíþjóð og bera þeim boðskap sinn og meðtaka það sem þeir höfðu fram að færa. Stundin upplýsti að Sigmundur ætlaði að vera með erindi á Svenska Bok- & Mediemässan þar sem fram kom einnig fólk sem dásamað hefði helförina og Adolf Hitler. Nokkru eftir að fréttin birtist hætti Sigmundur við að koma fram á ráðstefnunni og bar því við að hann væri önnum kafinn við þingstörf.
Sigmundur hlaut slæma útreið í kosningunum og var nærri því að falla með flokk sinn út af þingi. Hann hefur lengi daðrað við mál sem teljast til öfga í stjórnmálum. Skoðanakannanir leiða í ljós að Miðflokkurinn myndi þurrkast út ef kosið yrði nú. Hermt er að örvænting Sigmundar leiði hann inn á undarlegar brautir og hann horfi til þess að laða að fylgi með því að gera út á þjóðernismál og leggja sér til munns hrátt kjöthakk …