- Auglýsing -
Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri í Mosfellsbæ, þykir vera vanstilltur þessa dagana. Bæjarstjórnarfundir þykja hafa litast af geðvonsku bæjarstjórans sem vill helst ekki hlýða á röfl í minnihlutanum. Mikael Rebora, þriðji maður á lista Vina Mosfellsbæjar, hefur valdið bæjarstjóranum ama með því að vilja bóka eitt og annað um rugl í kringum Sorpu. Fjarfundir hafa farið úr böndunum vegna þessa. Bjarki Bjarnason, forseti bæjarstjórnar, hefur reynt að bera klæði á vopnin en bæjarstjórinn er hinn úfnasti og þykir stjórna forsetanum af hörku. Myndband með öskureiðum bæjarstjóranum er á sveimi um netheima …