Sigurjón Þórðarson, alþingismaður Flokks fólksins, er nýjasti skotspónn Morgunblaðsins í stríðinu vegn óvinum kvótakerfisins. Mogginn hefur fjargviðrast vegna þess að Sigurjón á smábát og virðist hafa gleymt að tíunda eign sína á hagsmunaskrá. Áður hafði Moggi Davíðs Oddssonar djöflast í Ingu Sæland fyrir ýmsar og misþungar sakir. Blaðið náði hágöngu sinni með því að vísa á heimili Ingu. Einhverjir telja fréttir Moggans einkennast af einelti og húsbóndakhollustu.
Sigurjón þingmaður kom illa við kviku Davíðs og félaga þegar hann lét í ljósi það álit sitt að skoða þyrfti útgáfustyrki til Moggans sem fékk 124 milljónir króna af almannafé, mest allra fjölmiðla, á síðasta ári. Inga Sæland hafði gefið í skyn að Mogginn væri falsfréttamiðill. Sigurjón tekur undir með henni og efast um að rétt sé að styrkja ófögnuðinn sem er að miklu leyi á framfæri Guðbjargar Matthíasdóttur auðkonu í Vestmannaeyjum og þykir ganga erinda hennar í mörgu.
Guðbjörg stjórnar auðhring sem nærist á eign sinni, fiskinum í sjónum. Þá er Guðbjörg víða með gríðarlegar eignir í samfélaginu og drottnar yfir majónesi og ýmsu öðru í skjóli kvótaauðsins. Smábaátaeigendur þykja ógna veldi hennar.
Nú hefur Logi Einarsson menntamálaráðherra boðað að hugasnlega verði sett þak á fjölmiðlastyrki. Fótgönguliðar Moggans fara hamförum vegna þessa og Hádegismóar leika á reiðiskállfi …