Píratar eru í miklum vandræðum eftir að upplýst var að virkur félagsmaður og áheyrnarfulltrúi flokksins var dæmdur fyrir grófa nauðgun. Mannlíf birti frétt um málið og allt fór á annan endann á Pírataspjallinu. Fram að þessu hafa Píratar verið þekktir fyrir að vilja opna umræðu um allt sem við kemur spillingu og glæpum. En nú kveður við annan tón. Frambjóðandi flokksins, Magnús Davíð Norðdahl, skrifar um frétt Mannlífs og skrifar um „popúlíska tilburði þegar um er að ræða eins viðkvæmt mál og raun ber vitni“. Magnús lætur að því liggja að fréttin sé árás á hælisleitendur og tilraun til að hrekja þá á brott. Píratarnir fjarlægðu svo fréttina af spjallinu. Einhverjir bentu á að sjálfsagt væri að tala um spillingu og glæpi þegar sjálfstæðismenn eða framsóknarmenn ættu í hlut en Píratarnir og allt þeirra slekti ætti að njóta friðhelgi undir öllum kringumstæðum. Magnús sækist eftir leiðtogahlutverki í næstu kosningum og er þá væntanlega með þöggun á stefnuskránni …