- Auglýsing -
Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, má svo sannarlega una glöð við sitt eftir að hafa tekið með sér fimm galvaska þingmenn á Alþingi. Flestir sáu fyrir sér eyðimerkurgöngu eftir að hún rak helming þingflokksins, Karl Gauta Hjaltason og Ólaf Ísleifsson, eftir uppistandið á Klausturbarnum. Hinir brottreknu gengu til liðs við drykkjufélaga sína en þurftu báðir að mæta þeim örlögum sínum að verða hent út af þingi. Inga þrefaldaði aftur á móti sinn flokk og kallar sig núna Sælands-sextettinn í anda Jakobs Frímanns Magnússonar, alþingismanns og Stuðmanns, sem er einn nýliðanna á þingi …