Óvissa er uppi um það hvað Þórður Snær Júlíusson, fyrrverandi ritstjóri, fær að gera í framhaldi þess að hann missti þingsætið í kjölfar þess að flett var ofan af gömlum hatursskrifum hans í garð kvenna. Þórður Snær fórnaði sér eftir uppljóstrunina og lýsti því yfir að hann myndi ekki taka sæti á þingi þótt hann næði kjöri. Svo fór að Samfylkingin vann stórsigur í kjördæmi hans þar sem Kristrún Frostadóttir tók með sér tvo menn á þing.
Reiknað er með að Þórður skili inn kjörbréfi sínu þegar sá tími kemur. Hermt er að velunnarar hans þrýsti nú á Kristrúnu að tryggja honum boðlegt starf að launum fyrir fórnfýsina. Formaðurinn þarf að vanda sig svo verknaðurinn verði ekki kenndur við vinavæðingu eða spillingu …