Blaðamaðurinn Lasse Skytt er í vondum málum eftir að upp komst að hann hafði skáldað upp fréttir og selt fjölmiðlum. Eftir að upp komst um heimildafölsun og ritstuld krafðist Jyllands-Posten 3 milljóna íslenskra króna í skaðabætur vegna þess að hafa keypt greinarnar.
Upplýst hefur verið að við rannsókn norska tímaritsins Aftenposten Innsikt hafi fundist slíkir ágallar á 23 af 43 greinum hans fyrir blaðið að nauðsynlegt hafi verið draga þær til baka.
Lasse býr með íslenskri konu hér á landi og hefur komið við sögu Blaðamannfélags Íslands sem birtir á vef sínum grein birta á rannsóknum hans. Óljóst er hvort greinin hafi verið keypt. Lasse, sem býr á Íslandi, tók á sínum tíma viðtöl við Sigríði Dögg Auðunsdóttur, formann Blaðamannafélagsins, og Þórð Snæ Júlíusson, ritstjóra Heimildarinnar.. Ekki er talið að hann hafi falsað viðtöl við þau skötuhjú. Grein Lasse stendur enn óhögguð á vef Blaðamannafélags Íslands.
Í Mogganum í dag er hæðst að Sigríði Dögg og þá sérstaklega í ljósi auglýsingaherferðar félagsins sem staðið hefur í fjölmiðlum, þóknanlegum félaginu. „En íslenska greinin á vef BÍ? Hún stendur allsendis óhögguð, óleiðrétt og sjálfsagt fjarskalega fagleg,“ segir í Mogganum …