Sara Lind Guðbergsdóttir, settur forstjóri Ríkiskaupa, situr ekki með hendur í skauti þessa dagana. Forstjórinn hefur lýst yfir aðgerðum á hendur þeim ríkisstarfsmönnum sem soga persónulega til sín vildarpunkta með því að ferðast á kostnað almennings með Icelandair. Sara bendir á að fæstir vilja ferðast með Play sem býður ekki upp á sporslur af þessu tagi. Þetta kostar ríkið svimandi útgjöld. Sara hefur undanfarið vakið athygli á þessu ófremdarástandi sem staðið hefur um áratugaskeið og gefið mörgum ríkisstarfsmönnum drjúgan ávinning.
Skipan Söru Lindar sem forstjóra til bráðabirgða vakti á sínum tíma mikla athygli. Bjarni Benediktsson, fyrrverandi fjármálaráðherra, skipaði hana við skyndilegt brotthvarf forvera hennar. Til stóð að auglýsa stöðuna en það hefur ekki verið gert og málið nú á borði nýs fjármálaráðherra. Þá hefur verið ólga innan stofnuninnar og forstjórinn duglegur við að reka fólk við litlar vinsældir.
Sara Lind er í stuði og líkur hennar á því að fá starfið til frambúðar hafa aukist með áherslunni á vildarpunktana og hugsanlegar aðgerðir þar til að siðvæða ríkið …