Mikil umræða hefur átt sér stað var’ðandi það okur sem á sér stað innan ferðaþjónustunnar og þá helst hjá veitingastöðum. Veðurfræðingurinn og lífskúnstnerinn, Sigurður Þ. Ragnarsson, Siggi Stormur, var á ferð í Borgarnesi þegar hann sá, sér til undrunar, að fjórir erlendir ferðamenn norpuðu nokkrir saman í kringum einn súpudisk og einn skammt af fiski.
Siggi horfði á þetta í forundran en lét undan forvitni sinni og spurði hvort þau kynnu ekki að meta íslenskan mat. Money money money var svarið.
Siggi bendir á hið augljósa sem er að Íslendingar eru komnir út yfir „alla skynsemi í verðlagningu “ og ferðamenn láti ekki bjóða sér lengur hvað sem er. Sjálfur fékk hann sér Ísey-skyr í Borgarnesi og lét það duga …