Einn allra besti blaðamaður Morgunblaðins er Sigurður Bogi Sævarsson sem lætur sér fátt óviðkomandi og krussar landið þvert og endilangt í leit að fréttum. Sigurður hefur þann háttinn á að fara rólega um þjóðvegi landsins og njóta þess sem fyrir augu ber. Borgarneslögreglunni ofbauð þetta aksturslag á dögunum og stöðvaði kappann og veitti honum tiltal.
Sigurður skrifaði færslu á Facebook um hægagang sinn og afskipti lögreglunnar. Það varð til þess að löggan sendi honum drykkjarkrús, merkta lögreglunni. Sigurður sagði frá gjöfinni með þeim orðum að hann hefði verið „stoppaður upp í Borgarfirði“. Sá gamansami Gísli Einarsson, ritstjóri Landans, var fljótur að kveikja og spurði í athugasemd hvort ekki hefði verið sárt að láta stoppa sig upp …