- Auglýsing -
Sigmar Guðmundsson fjölmiðlamaður er á þröskuldi þess að ná inn á þing fyrir Viðreisn í kjölsogi Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur formanns. Kannanir undanfarið sýna að hann á möguleika á þingsæti þrátt fyrir að vera ekki í oddvitasæti í Suðvesturkjördæmi. Hann mun þó þurfa nokkra heppni til að ná kjöri. Sigmar er stálheiðarlegur og hefur marga fjöruna sopið og er virtur sem fjölmiðlamaður í fremstu víglínu átakamála. Margir eru á þeirri skoðun að að sé missir af honum úr fjölmiðlum og einhver orðaði það þannig að þarna fari góður biti í hundskjaft …