Orðrómur
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, er einn af skrautlegri stjórnmálamönnum Íslands. Hann hefur einstaka hæfileika á að vekja á sér athygli. Nú seinast var það með grein sinni um Ybbana í Morgunblaðinu. Í löngu máli greinir hann þar hóp fólks sem telur sig hafið yfir annað fólk. Birtir hann skjáskot máli sínu til stuðnings. Þar er meðal annars vísað til Gísla Marteins Baldurssonar, Sóleyjar Tómasdóttur og Hrafns Jónssonar. Í einhverjum skilningi eru Ybbarnir Góða fólkið svonefnda sem er þyrnir í auga leiðtogans. Gísli Marteinn er lágt á vinsældalista Sigmundar eftir sjónvarpsviðtal forðum þar sem Sigmundur stóð uppi nakinn eins og keisarinn forðum. Gísli segir í færslu að að það sé hraustlega gert hjá Sigmundi að skilgreina heilan hóp sem Ybba en finna hópnum það helst til foráttu að hann sé stöðugt að skilgreina …