Baráttukonan Sema Erla Serdar reiðir hátt til höggs þegar hún segir Sigríði Björk Guðjónsdóttur ríkislögreglustjóra beinlínis ljúga. Málið snýst um brottflutning hælisleitandans Hussein Hussein í byrjun nóvember. Umboðsmaður Alþingis kannaði málið og spurði meðal annars ríkislögreglustjóra um það atvik þegar hælisleitandinn fatlaði var nauðungarfluttur í hjólastól.
Sigríður segir að gert hafi verið ráð fyrir að Hussein yrði fluttur á flugvöllinn í Keflavík í bifreið sérútbúinni fyrir hjólastóla. Þessi áform hafi farið úr skorðum vegna „einstaklinga sem hugðust jafnvel koma í veg fyrir brottflutninginn“.
Sema er hvassyrt á Facebook. „Hér er ríkislögreglustjóri að ljúga mjög alvarlegum sökum upp á almenna borgara,“ skrifar hún. Hún segir að hægt sé að sannreyna lygarnar þar sem myndskeið séu til að af atvikum …