Páll Steingrímsson, skipstjóri hjá Samherja, hefur birt nokkur fjölda greina til stuðnings Samherja og til ófrægingar fjölmiðlafólki og öðrum sem hafa verið gagnrýnir á stjórnendur Samherja og meint afbrot þeirra. Stundin birtir í dag ítarleg tölvupóstsamskipti sem sýna að Páll skipstjóri hefur látið Þorbjörn Þórðarsson, fyrrverandi fréttamann Stöðvar 2 og núverandi skuggapenna Samherja, skrifa stóran hluta greina sinna og yfirfara annað. Greinarnar hafa verið sumpart rætnar og illyrtar í garð þeirra sem Samherji hefur skilgreint sem óvini sína. Skrif launþegans hafa fallið í kramið hjá Þorsteini Má Baldvinssyni og öðrum þeim sem stjórna útgerðarfyrirtækinu umdeilda …