Skúli Mogensen athafnaður kveinkar sér undan harðri gagnrýni Óttars Guðmundssonar geðlæknis sem telur ófært að ráðherrar Sjálfstæðisflokksins baði sig í boði Skúla, „gjaldþrota auðmanns“. Óttar vísar þar til þess að Skúli steypti flugfélaginu WOW í gjaldþrot með tilheyrandi tjóni fyrir íslenska þjóð.
Sjóböðin og öll uppbyggingin í Hvammsvík hafa vakið mikla athygli og laða að sér fólk af ýmsu tagi. Óttar setti grjóltharða gagnrýni sína fram í Bakþönkum Fréttablaðsins en nú hefur Skúli svarað honum í aðsendri grein í Fréttablaðinu.
Skúli segist hvorki vera gjaldþrota né auðmaður. „Átti undirritaður að gefast upp og leggjast í kör og hætta frekari frumkvöðlastarfsemi og uppbyggingu?“ spyr Skúli ofboðslega sár og telur að rekstur hans á flugfélaginu hafi verið til mikillar hagældar fyrir Íslendinga og að ósanngjarnt sé að taka gjaldþrotið eitt sem dæmi um ófarir félagsins. Hann endar grein sína á því að bjóða Óttari að feta í slóð sjálfstæðismanna og kom í Hvammsvík til að kynna sér framtakið …