Skúli Helgason, borgarfulltrúi Samfylkingar, er í vanda vegna yfirlýsinga sinna árið 2ö19um að allt yrði í sóma í leikskólamálum Reykvíkinga. Halldóra Björk Þórarinsdóttir, formaður Barnsins, félags dagforeldra, upplýsti á dögunum að Skúli hefði sagt á fundinum að dagforeldrar yrðu óþarfir árið 2023 þegar öll börn yfir 12 mánaða aldri yrðu komin með leikskólapláss.
Nú er raunin sú að meirhlutinn í Reykjavík er að glíma við verra ástand í leikskólamálum en nokkru sinni fyrr. Foreldrar mótmæla ítrekað við Ráðhús Reykjavíkur. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri hefur það fram að færa að ástandið sé verra í sumum nágrannasveitarfélaga Reykjavíkur. Nú er spurt um svikin loforð og pólitíska ábyrgð …