Sölvi Tryggvason fjölmiðlamaður er mættur aftur af krafti með hlaðvarpðsþætti sína eftir meira en árshlé. Um er að ræða fjóra nýja þætti sem birtir voru í gær.
Sölvi hvarf af sjónarsviðinu eftir óljósar ásakanir um að hann hefði stigið yfir mörk kvenna. Mikill stormur hlaust af á samfélagsmiðlum og voru bornar á hann ásakanir sem ekki hafa staðist skoðun. Í einhverjum tilvikum var um uppspuna að ræða. Þættir hans nutu á þeim tíma gríðarlegra vinsælda en hann tók þá alla úr birtingu og fór í sjálfskipaða útlegð. Nú liggur fyrir að ekkert hefur gerst í þeim málum sem reist voru annað en að lögreglan hefur vísað frá kæru. Á meðal þeirra sem koma fram í nýjum þáttum Sölva er spákonan og sjónvarpskonan Ellý Ármanns sem segir frá skrautlegu lífshlaupi sínu …