Vangaveltur eru uppi um það hver verði útvarpsstjóri þegar Stefán Eiríksson axlar sín skinn í byrjun næsta árs og heldur á vit óljósrar framtíðar. Katrín Jakobsdóttir, sem glímir við yfirvofandi atvinnuleysi, hefur verið nefnd til sögunnar en líklegt er að hún fái hærri stöðu og þá líklega erlendis. Hefðin er sú þegar um er að ræða fyrrverandi forsætisráðherra.
Nafn Sigmundar Ernis Rúnarssonar, fyrrverandi ritstjóra Fréttablaðsins, hefur komið upp í umræðunni. Sigmundur Ernir hefur starfað á flestum fjölmiðlum landsins án þess að misstíga sig. Hann þykir í senn vera geðþekkur og spakvitur. Ekki er vitað hvort hann hafi áhuga á starfinu í Efstaleiti þar sem verkefnið verður að endurreisa orðstý og heiður stofnunarinnar …