Mikið púður hefur verið lagt í að kynna sjónvarpsþátt Moggans, Spursmál, þar sem Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, mætti. Stefán Stefánsson þáttastjórnandi var sagður í frétt Moggans hafa knúið um svör borgarstjórans varðandi það að Reykjavíkurborg hefði veitt olíufélögum undanþágur frá gjöldum sem nema milljörðum króna með því að komast hjá að greiða hvorki innviðagjöld né byggingaréttargjöld á reitum sem þau hyggjast byggja á.
Áhorfendur þáttarins fengu allt aðra mynd. Stefán talaði nánast jafnmikið og Dagur og rembdist sem rjúpan við staurinn að fá Dag til að viðurkenna þá spillingu að hafa fært olíufélögunum gjafir. Þá vildi hann meina að Baltasar Kormákur, leikstjóri og fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, hefði einnig þegið vinargreiða þegar hann fékk lóðir og hús í Gufunesi til að byggja kvikmyndaþorp.
Dagur sýndi fullkomna stillingu undir áköfu gjammi og frammíköllum stjórnandans sem virtist skorta næga þekkingu á umræddum málum til þess að króa Dag inni. Mogginn lýsir þessu þannig að það „sköpuðust heitar umræður“. Sá hiti var aðeins frá Stebba sem gerðist æstur og kvartaði undan lengd þáttarins. Að lokum stóð yfirvegaður og bjartur Dagur uppi sem sigurvegari og menn eru engu nær um meinta spillingu Dags, olíurisanna og Baltasars Kormáls …