Lögmaðurinn Sveinn Andri Sveinsson er einn sá umdeildasti í sínu fagi. Hann hefur á langri leið marga fjöruna sopið en gjarnan sloppið með skrekkinn. Nú er komið upp mál sem gæti reynst kappanum skeinuhætt. Sveinn var ráðinn sem skiptastjóri við gjaldþrot EK 1923 sem var í eigu athafnamannsins Skúla Gunnars Sigfússonar. Alls var kostnaður við skiptin 200 milljónir króna. Þar af tók skiptastjórinn Sveinn til sín 170 milljónir.
Mogginn upplýsir að dómkvaddur matsmaður telji að Sveinn hafi skrifað á sig of margar vinnustundir og innheimt of hátt tímagjald Sveinn Andri hefði með réttu átt að fá 74-87 milljónir fyrir vinnu sína. Hann hafi því oftekið hátt í 100 milljónir króna. Vinnustundir sem Sveinn Andri gaf upp voru 3450 en hefðu með réttu átt að vera helmingi færri.
Lögmaður Skúla Gunnars hefur sent öðrum kröfuhöfum boð um að taka þátt í hópmálsókn á hendur skipstastjóranum. Sveinn Andri er að líkindum í meira klandri en nokkru sinni fyrr …