Helga Þórisdóttir, forsetaframbjóðandi og forstjóri Persónuverndar, var opinská í Forystusætinu í Ríkissjónvarpinu. Þar bar á góma pólitískan þrýsting frá ráðherrum á embætti hennar. „Ég var atyrt,“ sagði hún.
Helga varpaði djúpsprengju þegar hún sagðí frá átökum Persónuverndar við Kára Stefánsson, forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar. Stofnunin átti í vök að verjast og þá ekki síst eftir að Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hafi tekið afstöðu með Kára og fyrirtæki hans í deilunni. Ekki varð annað skilið á frásögn Helgu en að Katrín hefði svikið Persónuvernd fyrir Kára sem lengi hefði átt í harkalegum útistöðum við Persónuvernd.
Kári er opinberlega stuðningsmaður Katrínar og hefur komið fram í auglýsingum til stuðnings henni …