Samband Kára Stefánssonar, forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar, og Þórólfs Guðnasonar, fráfarandi sóttvarnalæknis, hefur einkennst af miklum tilfinningum. Þeir hafa ýmist verið sáttir eða á öndverðum meiði með tilheyrandi yfirlýsingum. „Ég fæ bara tár í augun þegar ég hugsa um Þórólf því mér þykir svo vænt um hann og þetta gekk svo vel,“ sagði Kári við Viðskiptablaðið í tilefni þess að Þórólfur gagnrýndi ráðherra Sjálfstæðisflokksins fyrir málflutning þeirra í baráttunni gegn Covid. „En hann er ekki gallalaus maður og ég er algjörlega á móti þessari skoðun hans að það hafi eitthvað verið að því að menn tjáðu þessa skoðun,“ bætti Kári við um Þórólf og áréttaði að ríkisstjórnin hefði staðið sig vel í baráttunni og einstakir ráðherrar mættu hafa sínar skoðanir …