Vantrauststillaga Miðflokksins á matvælaráðherra verðir tekin fyrir á Alþingi á morgun. Þá kemur á daginn hvort Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir stendur eða fellur eftir framgöngu sína í hvalamálinu. Víst er talið að stjórnarandstaðan standi saman í málinu. Stóra spurningin er hins vegar hvað órólega deild Sjálfstæðisflokksins gerir. Óli Björn Kárason, Teitur Björn Einarsson og Jón Gunnarsson hafa allir haft uppi stór orð um afglöp Vinstri-grænna. Þeir hafa nú tækifæri til að standa við stóru orðin. „Nú reynir á þingmenn Norðvesturkjördæmis hvort þeir standi með kjördæminu, standi með lögunum, standi með stjórnarskrárvörðum rétti fyrirtækja og einstaklinga,“ segir Vilhjálmur Birgisson, verkalýðsleiðtogi á Akranesi, sem reyndar studdi höfuðpaurinn í hvalamálinu, Katrínu Jakobsdóttur, í forsetakosningunum.
Augu manna beinast ekki síst að Teiti Birni. Hann er sonur þingmannsins Einars Odds Kristjánssonar heitins sem fór venjulega sínar eigin leiðir í pólitík og skeytti lítt um vinsældir. Trúverðugleiki Teits veltur á vantraustsmálinu. Jafnframt má ljóst vera að líf ríkisstjórnarinnar hangir á sama bláþræði …