Björn Leifsson, einn eigenda World Class, er einstaklega átakasækinn. Hann fjargviðrast reglulega út af því að þurfa að loka stöðvum sínum á meðan veiran grasserar og grætur glatað fé. Nýjasta útspil hans var að veitast að Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni og dylgja um að ástæða aðgerðanna sé sú að hann hafi fóbíu gagnvart heilsuræktarstöðvum. Kom þá á daginn að Þórólfur er einn þeirra fjölmörgu sem borga fyrir aðgang að stöðvunum án þess að nýta sér þjónustuna.
„Ég er búinn að vera viðskiptavinur World Class í mörg ár og borga reglulega gjöld þar inn með glöðu geði. Ég hef átt þar góðar stundir, meira að segja búinn að borga heilt árgjald allt þetta ár og hef aldrei farið,“ sagði Þórólfur á Rás 2. Hann mokar sem sagt peningum í Bjössa og er sannkölluð hjálparhella án þess að fá neitt í staðinn …