Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, formannsefni Sjálfstæðisflokksins, er þekkt fyrir að kunna að njóta lífsins. Hún fer gjarnan út að skemmta sér og vekur hvarvetna athygli fyrir gleðiríkan þokka. Hún var á dögunum óheppin þegar hún týndi fartölvu sinni á djamminu á Port 9 bar. Strangheiðarlegur vert tók tölvuna afsíðis og sendi Áslaugu skilaboð.
Áslaug hefur undanfarið verið með blæti fyrir þorrablótum og gekk svo langt að mæta á þorrablót KR, verandi yfirlýstur Fylkismaður. Um liðna helgi mætti hún síðan á þorrablót Aftureldingar í Mosfellsbæ. Framundan eru væntanlega ótal þorrablót víða um land sem Áslaug þarf að sinna til að mismina ekki höfuðborg og landsbyggð. Þannig er reiknað með að hún mæti á eitt frægasta þorrablót landsins, Stútung á Flateyri sem haldinn verður í byrjun febrúar …