Mikil spenna ríkir meðal Íslendinga vegna Eurovision og kemur í ljós á laugardaginn hvaða flytjendur taka þátt í keppninni fyrir hönd Íslands. Ef marka má hlustanir á Spotify og athygli á samfélagsmiðlum þá stefnir í að VÆB bræðurnir Matthías Davíð og Hálfdán Helgi Matthíassynir sigri auðveldlega. Vinsældir þeirra meðal almennings virðast vera talsvert meiri en annarra keppenda.
Hafa vinsældir þeirra náð slíkum hæðum að þeir hafa þurft að þola baktal og dylgjur annarra keppenda. Sagt er að Júlí Heiðar Halldórsson sé manna pirraðastur á bræðrunum. Júlí hefur verið einn vinsælasti tónlistarmaður Íslands undanfarin ár og hann er sagður hafa gert sér miklar væntingar um sigur í Söngvakeppninni. Líklegt er þó að eina leið hans til Sviss verði með mikilli hjálp dómnefndar …