Margt bendir til þess að uppkosning verði að fara fram í Norðvesturkjördæmi með tilheyrandi hringekju uppbótarþingmanna. Ný skoðanakönnun MMR bendir til þess að Sjálfstæðisflokkurinn sé að hrynja í fylgi frá kosningum. Bjarni Benediktsson formaður þarf því að hafa áhyggjur. Líklegt er að það muni endurspeglast í uppkosningunni. Sjálfstæðisflokkurinn mælist nú 21,1 prósent, eða rúmum þremur prósentustigum minna en í kosningunum. Aftur á móti heldur Framsóknarflokkurinn áfram að hækka flugið og hefur bætt við sig einu prósentustigi. Píratar hafa bætt við sig fylgi sem nemur þremur prósentustigum. Viðreisn er einnig með mældist með tæpum tveimur prósentum hærra sem er gleðiefni fyrir frambjóðandann Guðmund Gunnarsson sem missti þingsætið við seinni talningu og krefst uppkosningar …