Sú einstaka staða er uppi á Ísafirði að Sif Huld Albertsdóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins á Ísafirði, hefur tilkynnt um afsögn sína vegna eineltis af hendi Margrétar Geirsdóttur, sviðsstjóra velferðarsviðs. Ísafjarðarbær hefur fallist á sjónarmið bæjarfulltrúans fráfarandi og beðið Sif afsökunar. Eftir sem áður situr Margrét í embætti sínu, einhverjum til undrunar. Sif hefur boðað að hún muni sækja bætur á hendur bænum vegna málsins. En málið á sér dýpri rætur og það er í raun hápólitískt. Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn eru í meirihlutasamstarfi með einn mann fram yfir minnihlutann. Annar fulltrúa Framsóknarflokksins er Marzellíus Sveinbjörnsson sem jafnframt er eiginmaður Margrétar, sem sökuð er um eineltið. Hefur málið að sögn litað samstarfið frá því það kom upp og ákveðið uppnám ríkt. Sif Huld er því væntanlega að bjarga meirihlutanum með afsögn sinni …